Almennu gjafabréfin okkar eru vinsælust og má nota þau fyrir allar vörur sem við höfum uppá að bjóða. Gildir því einu hvort þau eru notuð til að greiða fyrir leigu á reiðhjóli, rafskutlu eða til að greiða fyrir aðrar vörur sem við erum með í boði í verslun hverju sinni.
Gjafabréf gilda í 1 ár frá útgáfudegi og er hægt að stíla þau á nafn kaupanda en algengara er að þau séu útgefin á handhafa. Ef eigandi getur ekki sjálfur notað bréfið sitt er honum heimilt að gefa eða framselja það til þriðja aðila.
Við afgreiðum gjafabréf jafnt á staðnum sem og í síma eða tölvupósti. Hægt er að greiða með millifærslu, símgreiðslu, debet eða kreditkorti og Paypal.
Síminn er: 00 34 603 60 62 62
Einnig má senda okkur sms og við hringjum til baka.
Netfang: tenebikerent@gmail.com